Persónuverndarstefna

Síðast uppfært: 24. ágúst 2026

1. Inngangur

Stats (rekið af Novamedia ehf., kt. 540606-2260) leggur mikla áherslu á persónuvernd. Þessi stefna útskýrir hvernig við söfnum, notum og verndum upplýsingar.

Stats er hannað með persónuvernd að leiðarljósi: engar vafrakökur sem krefjast samþykkis, og IP-tala gesta er ekki vistuð. IP er persónuupplýsingar samkvæmt GDPR og er unnin tímabundið til að telja gesti og greina landshluta — svo hent.

2. Engin geymsla í vafra og engar vafrakökur

Stats notar engar vafrakökur (cookies) og geymir ekkert í vafra gestsins til að fylgjast með honum. Viðskiptavinir þurfa því ekki að sýna cookie-tilkynningu vegna Stats.

Til að greina einstaka gesti reiknum við dulkóðað auðkenni á þjóni okkar úr IP-tölu, vafraupplýsingum og auðkenni vefsins ásamt salti sem skiptir um gildi á hverjum sólarhring. IP-talan er persónuupplýsingar sem eru unnar í þessum tilgangi; hvorki hún né önnur hrágögn eru vistuð, og auðkenni gærdagsins verður ekki tengt við auðkenni dagsins í dag.

Eina undantekningin er ef gestur velur að afþakka mælingu — þá vistum við eitt gildi (_stats_ignore) í vafranum svo hægt sé að virða þá ákvörðun.

Mælingar eru sjálfkrafa slökktar þegar vafrinn sendir Do Not Track (DNT) eða Global Privacy Control (GPC).

3. Hvaða gögnum er safnað

Fyrir gesti á vefum viðskiptavina: síðuslóð, tilvísun, tæki/vafrar, landfræðileg staðsetning á landshlutastigi (leidd af IP án þess að IP sé geymd), UTM-breytur og atburðanöfn.

Fyrir notendareikninga: netfang, fyrirtækisnafn, kennitala (ef gefin), greiðsluupplýsingar til reikningagerðar og notkunarupplýsingar um þjónustuna.

4. Tilgangur vinnslu

Gögn eru unnin til að veita vefgreiningu, búa til AI-innsýn, senda þjónustupósta, innheimta áskriftir og bæta þjónustuna.

5. Geymslutími

Greiningargögn eru geymd samkvæmt áskriftarpakka (90 dagar á ókeypis pakka, 1 ár eða ótakmarkað á greiddum). Reikningsgögn eru geymd eins lengi og lög krefjast (bókhald).

6. Miðlun til þriðja aðila

Við seljum ekki persónuupplýsingar. Við notum áreiðanlega vinnsluaðila (t.d. hýsing, tölvupóstur, gervigreind) samkvæmt vinnslusamningum.

7. Réttindi þín

Þú getur óskað eftir aðgangi, leiðréttingu eða eyðingu gagna, og lagt fram kvörtun hjá Persónuvernd.

8. Samband

Spurningar um persónuvernd: stats@stats.is · Novamedia ehf., kt. 540606-2260.